Mér finnst ég svo ógeðslega dugleg. Í gær, frá 5 til hálf 7 tók ég til. Ótrúlega dugleg. Tók til í allri stofunni, eldhúsinu, sópaði og ryksugaði, þurrkaði af, eldaði en vaskaði reyndar ekki upp. Var sko engan vegin í stuði fyrir það.
Við fengum í gær svona líka æðislegar barnapíur. Þau heita Frú Saltstöng og Herra Rúsína. Herra Rúsína fær reyndar ekki að passa neitt voðalega mikið. Þið fattið líklega ástæðuna sjálf. Afkvæmið sat bara í stólnum sínum á meðan ég tók til og eldaði. Við vorum að hlusta á útvarpið í leiðinni. Svo allt í einu kemur Holly Dolly song í útvarpinu. Afkvæmið greinilega elskar þetta lag. Fór að dansa af sinni snillikunnáttu í stólnum. Ég tók hann upp úr stólnum, og þá dansaði hann ennþá meira og brosti út að eyrum.
Við erum að fá þurrkara á eftir. Tengdó eru að ná í hann fyrir okkur í borg óttans. Víjj, ég er svo ótrúlega spennt. Já, en það þýðir nú ekker að vera að spenna sig neitt ofur mikið. Þá fæ ég bara kvíðakast, og því nenni ég ekki!
Hafið þið smakkað þetta svarta sykurlausa Ópal? Ef ekki, þá ráðlegg ég ykkur að sleppa því alfarið. Þetta er bæði vont og hættulegt. Maður fær alveg klikkaða drullu af þessu, hef ég heyrt. En ég hef smakkað það, mér finnst það vont, en ég hef ekki fengið drullu, hef líklega ekki borðað nóg af þessu. Sem betur fer kannski.
Sigrún systir kemur líklega á morgun. Hún ætlar að passa á meðan við förum í jarðaförina.
Ómægod! Ég nauðsynlega verð að segja ykkur að það er búið að klippa hárið á barninu mínu! Mamma mín klippti það í gær, með mínu samþykki, en guð hvað það var erfitt að sjá á eftir þessu fallega hári! En.. life goes on!
Hvernig eruð þið að fíla lagið hans Palla, International? Vá, ég er svo að elska það. Svo er annað lag sem ég er mikið að hlusta á þessa dagana. Það er I Saved The World með Eurythmics. Ótrúlega fallegt lag. Það minnir mig á eitthvað, en ég fatta ekki alveg hvað.
Afkvæmið er frami að stríða pabba sínum, á meðan ég er hérna í tölvunni að skrifa þetta blogg. En ég er sko ekki að nenna því. Ég blogga bara betur seinna.
-Ólöf Anna. <3
